Skip to content

Latest commit

 

History

History
31 lines (23 loc) · 1.15 KB

marbella_kjulli.md

File metadata and controls

31 lines (23 loc) · 1.15 KB

Marbella Kjúklingur

#adalrettur

Innihald:

  • 2 vænir kjúklingar
  • ½ hvítlaukshaus
  • ⅛ bolli oreganó
  • ¼ bolli balsam- eða rauðvínsedi
  • ½ bolli olífuolía
  • 1 bolli hvítvín
  • Salt og nýmalaður pipar
  • 1 bolli steinlausar sveskjur
  • ½ bolli steinlausar, grænar ólífur
  • ¼ bolli kapers, ásamt svolitlum vökva
  • 2 lárviðarlauf
  • ½ bolli púðursykur
  • ¼ bolli fínskorin steinselja

Aðferð:

  1. Skerið kjúklingana í bita og raðið í ofnskúffu.

  2. Blandið mörðum hvítlauk, oreganó, ediki, ólífuolíu og hvítvíni saman í skál og hellið yfir kjúklingana.

  3. Stráið salti og pipar yfir bitana og dreifið sveskjum, ólífum og kapers jafnt ofan á. Stingið loks lárviðarlaufi á milli bitana.

  4. Bakið við 200°C og ausið vökva öðru hvoru yfir kjúklingana fyrstu 20 mínúturnar. Stráið þá púðursykri yfir bitana og bakið í 30-40 mínútur til viðbótar eða þar til sykurinn er orðin fallega brúnn og stökkur.

  5. Raðið kjúklingunum, sveskjum, ólífum og kapers á fat, dreifið steinselju yfir og setjið vökvann af fatinu í sósuskál.

  6. Borið fram með hrísgrjónum og heitu brauði.